Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir það alrangt að bæjarstjórn hafi samþykkt að greiða 1,5 milljarð í leigu fyrir Vetrargarðinn í Smáralind þar sem áætlað sé að opna nýja menningarmiðstöð og bókasafn. Ásdís segir leigusamninginn trúnaðarmál en 1,5 milljarða kostnaður taki til rekstrar- og launakostnaðar til næstu tíu ára.