Slóvenska körfuboltastjarnan Luka Dončić, sem spilar fyrir Los Angeles Lakers í NBA, og slóvenska fyrirsætan Anamaria Goltes hafa slitið trúlofun sinni eftir tíu ára samband. Þau eru sögð deila um forræði yfir dætrum sínum tveimur sem Dončić hefur ekki séð síðan í desember.