Verðbólguvæntingar hafa hækkað á alla mælikvarða á undanförnum vikum, sem hefur þýtt að aðhaldsstig peningastefnunnar hefur minnkað talsvert, og er Seðlabankinn þess vegna „nauðbeygður“ til að hækka vexti um 25 punkta í næstu viku, að mati greinenda IFS. Útlit er fyrir að verðbólgan muni hækka enn frekar í mars og bankinn þurfi að bregðast hratt við „óheppilegri framvindu“ undanfarna mánuði.