Móðir dönsku stúlkunnar Emilie Meng, sem myrt var árið 2016, hefur gagnrýnt nýja heimildaþáttaröð á Netflix sem fjallar um morðið á dóttur hennar og aðra glæpi framda af hinum 33 ára gamla Philip Patrick Westh.Þættirnir, sem heita Ven med en morder (Vinur morðingja), hafa vakið heimsathygli. Þeir fjalla um glæpi Westh, hið svokallaða Kirkerup-mál, sem er eitt umfangsmesta sakamál Danmerkur á síðustu árum. BYGGJA Á VIÐTÖLUM VIÐ ÞRJÁ FYRRUM VINI MORÐINGJANS Í þáttunum er fjallað um Philip Patrick Westh sem var dæmdur fyrir morðið á Meng og fleiri alvarleg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum árið 2024.Í þeim segja þrír fyrrum vinir Westh frá því hvernig þau uppgötvuðu að maður sem þau þekktu vel væri morðingi sem haldið hafði samfélaginu í óvissu og ótta með glæpum sínum um árabil.Mai-Brit St