Hæstiréttur þyngdi í dag fangelsisrefsingu bræðranna Jónasar og Elíasar Shamsudin í þriggja ára fangelsi. Þá var Samúel Jói Björgvinsson dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar.Shamsudin-bræður höfðu áður hlotið tveggja og hálfs árs fangelsisdóm í Landsrétti en Samúel Jói þriggja ára dóm. Ákæruvaldið taldi dóm Landsréttar of vægan og áfrýjaði því málinu til Hæstaréttar.Allir voru mennirnir sakfelldir eftir að um þrjú kíló af MDMA-kristöllum fundust í fölsku lofti í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í fyrra. Lögregla fékk nafnlausa ábendingu um felustaðinn og skipti efnunum út fyrir falsefni og handtók mennina eftir að þeir höfðu sótt það.Fram kemur í dóminum að úr slíku magni af kristöllum hefði mátt framleiða um 23 þúsund MDMA-töflur. Þá voru allir einnig sakfelldir fyrir vörslu á öðru