Oddur Einar Sigurðsson, verjandi annars sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða, segir ómerkingardóm Hæstaréttar hafa verið umbjóðanda sínum vonbrigði. „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími eftir efnislegri niðurstöðu sem báðir sakborningar og verjendur bjuggust við að kæmi í dag og þessu sakarefni yrði þá lokið í eitt skipti fyrir öll.“