Kjartan Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn verður formaður nýs borgarstjórnarflokk óháðra sem tekur formlega til starfa á föstudaginn.Auk Kjartans eru í flokknum Marta Guðjónsdóttir, sem einnig var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Helgi Áss Grétarsson 1. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn í janúar. Þau Kjartan og Marta gerðu það á föstudaginn.Þetta verður 9. flokkurinn sem á fulltrúa í borgarstjórn. Hinir eru Flokkur fólksins, Píratar, Samfylkingin, Sósíalistaflokkurinn og VG sem mynda meirihluta. Og svo Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn sem eru í minnihluta. MIÐFLOKKSFÓLK Í RÆÐU OG RITI „Formlega erum við óháð,“ segir Kjartan. „En í ræðu og riti verðum við Miðflok