Peter Mandelson vildi fá greitt sem nemur meira en 90 milljónum króna þegar hann var rekinn úr embætti sendiherra í september vegna tengsla við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Í áreiðanleikaskýrslu sem var gerð við skipan Mandelsons í embætti sendiherra í Bandaríkjunum voru bresk stjórnvöld vöruð við hættu á því að orðspor þeirra gæti óhreinkast.Þetta er á meðal þess sem kemur fram í gögnum sem voru birt í dag vegna skipan Mandelsons.Fyrir fram var skýrslan talin líkleg til að vekja upp enn fleiri spurningar um ákvörðun Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, um að tilnefna Mandelson sem sendiherra þrátt fyrir vitneskju um tengsl við Epstein.Í bréfi sem Starmer var sent 11. desember 2024, níu dögum áður en Mandelson var staðfestur í embætti sendiherra, var honum tjáð að skýrsla