Stefán Vagn Stefánsson er nýr þingflokksformaður Framsóknar, en tillaga þess efnis var samþykkt á þingflokksfundi flokksins á Alþingi í dag. Hún tekur við af Ingibjörgu Isaksen.Á þingflokksfundinum var einnig samþykkt að Þórarinn Ingi Pétursson, oddviti í Norðausturkjördæmi, yrði varaþingflokksformaður. FORMENNSKU INGIBJARGAR LÝKUR SNÖGGLEGA Stefán Vagn er oddviti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi og hefur gegnt embætti varaþingflokksformanns á kjörtímabilinu. Hann hefur setið á Alþingi frá árinu 2021.Stefán var kjörinn varaformaður Framsóknar á flokksþingi í febrúar. Þar bar Lilja Dögg Alfreðsdóttir sigur úr býtum í formannskjöri flokksins gegn Ingibjörgu Isaksen, fráfarandi þingflokksformanni.