Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Grunar að maður hafi kveikt í sér í rútunni

Grunur leikur á að orsök eldsvoða sem kostaði sex lífið í rútu í Sviss í gærkvöld sé sú að einn farþeganna hafi kveikt í sér. Þessu greindi Raphael Bourquin, saksóknari í Fribourg-kantónu, frá á blaðamannafundi síðdegis.Sex fórust í eldsvoðanum og fimm voru með brunasár, þar af þrír illa brunnir.Eitt vitnanna sem yfirvöld töluðu við sagði að svissneskur karlmaður hefði stigið inn í rútuna og haldið á pokum. Hann hefði síðar hellt yfir sig vökva og kveikt í sér.„Það eru alls engin sönnunargögn sem gefa til kynna að þetta hafi verið hryðjuverk,“ sagði Bourquin og tók fram að maðurinn sem er talinn hafa kveikt í sér og rútunni sé meðal þeirra sem fórust. Bourquin sagði að maðurinn hefði ekki virst ganga heill til skógar.
Grunar að maður hafi kveikt í sér í rútunni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta