Verðbólguhorfur hafa versnað og því er viðbúið að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína á miðvikudag eftir viku, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Stýrivextir voru lækkaðir úr 7,50 í 7,25 prósent í nóvember í fyrra en greiningardeildin spáir því að sú lækkun gangi til baka á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabankans. Greiningardeildin býst við vaxtahækkun í næstu viku eða skýrum skilaboðum um að vextir hækki í maí ef horfur hafa ekki batnað fyrir þann tíma.„Versnandi skammtíma verðbólguhorfur og hækkandi verðbólguvæntingar munu þar vega þyngra að mati okkar en kólnandi hagkerfi og vaxandi slaki á vinnu- og íbúðamarkaði. Talsverðar líkur eru þó á að nefndin kjósi að halda vöxtum óbreyttum en gefa sterklega í skyn að vaxtahækkun liggi í loftinu í maí nema horfur breytist til batnaðar.