Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stöðvarskyldan dýrkeypt fyrir einyrkja á landsbyggð og stefnir í að leigubílar hverfi

Leigubílstjóri á Egilsstöðum sér fram á að hætta störfum þegar skylt verður að starfa á leigubílastöð. Kostnaðurinn við það sé of mikill fyrir þá túra sem bjóðast einyrkjum úti á landi.„Það eru nýju leigubílalögin sem eru svolítið að pirra mig þessa dagana. Þau taka gildi núna fyrsta júní og það stefnir allt í það að maður missi þessa atvinnu, sem er ekki gott. Ég er búinn að stunda þetta síðan 1991 en nú þarf víst að vera á stöð samkvæmt nýju lögunum,“ segir Jón Eiður Jónsson leigubílstjóri á Egilsstöðum.Hann er nýlega búinn að fjárfesta; endurnýjaði bílinn í sumar og hann hefur verið með rakningakerfi í bílnum. En það að skrá sig á stöð myndi stórauka allan kostnað. „ÞAÐ ER BARA EKKI HÆGT ÚTI Á LANDI“ „Ég sem einyrki er bara ekkert að ná því sem það kostar á mánuði. Það er mánaðargjal
Stöðvarskyldan dýrkeypt fyrir einyrkja á landsbyggð og stefnir í að leigubílar hverfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta