Huginn Ari Richter er tvö þúsundasti íbúinn í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hann er tæplega tveggja ára og nýfluttur í bæinn með foreldrum sínum og systur. Hvort sem það er tilviljun eða ekki þá var frænka hans, Alexandra Líf Ingþórsdóttir, þúsundasti íbúi Voga árið 2005.