Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rannsókn lögreglu á tveimur hópnauðgunum lokið

Rannsókn lögreglu á tveimur hópnauðgunum í Reykjavík í apríl í fyrra er lokið. Annað málið er komið á borð héraðssaksóknara. Hitt verður sent á ákærusvið í vikunni. Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá kynferðisbrotadeild. Hún segist að öðru leyti ekki tjá sig um málin.Tvær konur kærðu þrjá menn fyrir hópnauðgun í apríl í fyrra. Brotin áttu sér stað með tveggja vikna millibili og sömu mennirnir virtust hafa verið að verki í bæði skiptin. SÖMU MENN AÐ VERKI Í SÖMU ÍBÚÐ Í VESTURBÆ Konurnar tvær þekktust ekki. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður kvennanna, sagði í samtali við fréttastofu í fyrra að útlit væri fyrir að brotin væru þaulskipulögð. Þá sagði hann að grunur léki á að konunum hafi verið byrluð ólyfjan á sama skemmtistaðnum í miðborg Reykjavíkur. Þ
Rannsókn lögreglu á tveimur hópnauðgunum lokið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta