Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vara við holum og takmarka ásþunga

Miklar skemmdir eru á slitlagi á vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og víða eru holur í yfirborði þeirra. Vegagerðin hefur því ákveðið að takmarka ásþunga á tólf vegum og biður fólk að fara varlega. Vegagerðin vakti athygli á því í morgun, samhliða upplýsingum um færð á vegum, að holur væru mjög víða á vegum á Vesturlandi. Á tíunda tímanum tilkynnti hún svo um að ásþungi yrði takmarkaður við sjö eða tíu tonn á tólf vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum.Takmarkanirnar taka gildi klukkan tólf í dag.Leyfilegur ásþungi fer niður í sjö tonn á Vestfjarðavegi frá Dalsmynni að vegamótum Djúpvegar í Króksfirði. Á öðrum vegum verður ásþunginn tíu tonn.
Vara við holum og takmarka ásþunga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta