„Staðan eftir þennan dag er þannig að seldar bækur eru 103.997 á móti 102.216 í fyrra og enn eru fimm dagar eftir,“ sagði Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Bókamarkaðar Félags íslenskra bókaútgefenda, eftir lokun í gær þegar ljóst var að sölumet síðasta árs verði bætt hressilega.