Valdimar Víðisson bæjarstjóri leiðir lista Framsóknarflokksins í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista flokksins hlaut samþykki á félagsfundi í gær.Annað sæti listans skipar Kolbrún Magnúsdóttir mannauðsráðgjafi. Í þriðja sæti er Árni Rúnar Árnason tæknistjóri en í því fjórða er Jóhanna Erla Guðjónsdóttir.Guðmundur Fylkisson lögreglumaður er í fimmta sæti listans. TILBÚIN TIL ÁFRAMHALDANDI FORYSTU Í HAFNARFIRÐI Valdimar Víðisson, oddviti og bæjarstjóri, segir flokkinn tilbúinn til áframhaldandi forystu í Hafnarfirði. Hann býður fólk sem tekið hefur þátt í starfi annarra flokka en ákveðið hefur að ganga til liðs við Framsókn sérstaklega velkomið.„Á listanum eru einstaklingar með mikla reynslu af pólitísku starfi og samfélagsmál