Inditex, móðurfélag spænska hraðtískurisans Zara, var rekið með methagnaði í fyrra. Þetta var þriðja árið í röð þar sem hagnaður af rekstri þess er meiri en nokkru sinni áður í sögu fyrirtækisins. Inditex skilaði 6,22 milljarða evra hagnaði í fyrra, andvirði rúmlega 900 milljarða króna. Auk Zara á Inditex meðal annars vörumerkin Massimo Dutti, Pull & Bear og Bershka. Það rekur yfir fimm þúsund verslanir víða um heim og hefur 160 þúsund manns í vinnu.Fyrr á þessu ári var tilkynnt að elstu Zara-búðinni yrði lokað.EPA / Cabalar