Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fékk þrettán mánaða dóm fyrir fíkniefnasmygl

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í síðustu viku til þrettán mánaða fangelsisrefsingar fyrir fíkniefnasmygl. Hann var staðinn að smygli á 1.870 grömmum af kókaíni til landsins. Efnið fannst í farangri mannsins þegar hann kom til Íslands frá Amsterdam í Hollandi 30. janúar. Maðurinn játaði brot við þingfestingu og sagðist hafa tekið að sér að flytja kókaínið til Íslands gegn greiðslu. Hann var því sakfelldur og dæmdur til fangelsisvistar. Héraðsdómur Reykjaness.RÚV / Ragnar Visage
Fékk þrettán mánaða dóm fyrir fíkniefnasmygl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta