„Ég þreytist aldrei á því að minna á það að það kostar jafn mikið að byggja ljótt hús og það kostar að byggja fallegt hús,“ segir Albína Thordarson arkitekt sem hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands fyrir framlag sitt til byggingarlistar fyrr í vetur. Hún var ein af fyrstu konunum á Íslandi til að reka eigin arkitektastofu.Albína var gestur Höllu Harðardóttur í Svipmynd Víðsjár á Rás 1 þar sem hún var gagnrýnin á uppbyggingu Landspítala, flugvallarins í Vatnsmýri og fyrirhugaðs þjóðarleikvangs í Laugardal. Hún segir nýja byggð vera of einsleita þar sem gæði eru ekki sett í fyrsta sæti. VEIT EKKI HVERJIR VILJA BÚA ÞARNA Albína er fædd árið 1939 í Reykjavík og er óhætt að segja að arkitektúrinn sé henni í blóð borinn. Faðir hennar, Sigvaldi Thordarson, rak um tíma arkitektastofu