Útlit er fyrir norðlægar áttir og snjókomu eða slyddu á norðanverðu landinu í dag og næstu daga. Hægari vindur og stöku él á sunnanverðu landinu og á hiti að vera nálægt frostmarki í dag. Á morgun á að bæta í vind en að öðru leyti á veðrið að verða svipað og í dag.