Hæstiréttur kveður upp tvo dóma í dag klukkan tvö. Annar er í hryðjuverkamálinu svokallaða. Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathanssynir voru sýknaðir af ákærum um skipulagningu hryðjuverka í héraðsdómi og Landsrétti en ákæruvaldið áfrýjaði dóminum til Hæstaréttar og krafðist sakfellingar. Verjandi Sindra sagði ákæruvaldið hafa farið offari. Endanlegur dómur verður kveðinn upp í dag.Hæstiréttur kveður einnig upp dóm í máli gegn bræðrunum Jónasi og Elíasi Shamsudin og Samúel Jóa Björgvinssyni vegna fíkniefnalagabrota. Bræðurnir fengu tveggja og hálfs árs fangelsisrefsingu og Samúel þriggja ára.Sindri Snær Birgisson við aðalmeðferðina í Hæstarétti.RÚV / Ragnar Visage