Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ræddu aðildarviðræður við ESB fram undir miðnætti

Þingmenn ræddu þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið til að verða tólf á miðnætti í gærkvöld. Þingfundur hófst klukkan hálf tvö og stóð umræðan um aðildarviðræðurnar yfir frá klukkan tvö eða í tæpar tíu klukkustundir.27 ræður hafa verið fluttar og andsvör við þeim á fyrstu tveimur þingfundadögum Alþingis eftir að tillagan var lögð fram. Fimmtán eru á mælendaskrá. Umræðunni verður ekki haldið áfram fyrr en eftir helgi þar sem nefndafundir eru á Alþingi í dag og á morgun.Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, í ræðupúlti í fyrradag.RÚV / Ragnar Visage
Ræddu aðildarviðræður við ESB fram undir miðnætti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta