Ellefu hjúkrunarrými við Sléttuveg í Reykjavík opna aftur á næstu dögum eftir viðgerðir sem ráðast þurfti í eftir að kviknaði í húsnæðinu í nóvember.„Og síðan auðvitað styttist í að biðrýmin í Urðarhvarfi opni, þannig það mun muna um þetta tvennt,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra um það sem er á dagskrá næstu tvær vikur í átaki um fjölgun hjúkrunarrýma. Hún segir engar skyndilausnir á vanda bráðamóttökunnar vegna skorts á hjúkrunarrýmum en ýmislegt sé í vinnslu.Framkvæmdastjóri hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi kvartaði í kvöldfréttum sjónvarps í gær undan háu flækjustigi í stjórnsýslu vegna breytingar dvalarrýma í hjúkrunarrými. Dvalarrými falla undir verksvið félags- og húsnæðismálaráðuneytisins en hjúkrunarrými eru á forræði heilbrigðisráðuneytisins.Alma se