Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus og starfsmaður Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt, segir hugveitu sína starfa með alþjóðlegu neti hugveitna og stofnana sem Miðflokkurinn tengist nú í auknum mæli. Ein þeirra er New Direction, hugveita sem tengist ECR, Evrópuflokki íhaldsmanna og umbótasinna, sem Miðflokkurinn er nú í aðildarferli hjá. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, hefur sótt fjölda...