„Ég flutti til London tuttugu ára gamall og fór aðeins að prófa mig áfram þar,“ segir Vilberg Andri Pálsson sem er í dag 27 ára gamall og býr hérlendis. Hann er tónlistarmaður og sölumaður í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar og elskar hvað tíska og skemmtileg klæði geta haft jákvæð áhrif á sjálfsöryggið.