Þrír bræður, þar á meðal tveir af þekktustu fasteignasölum Bandaríkjanna á sviði lúxuseigna, voru á mánudag sakfelldir í New York fyrir samsæri um mansal í kynferðislegum tilgangi eftir fimm vikna réttarhöld. Bræðurnir, tvíburarnir Oren og Alon Alexander, 38 ára, og eldri bróðir þeirra Tal Alexander, 39 ára, voru fundnir sekir í öllum tíu ákæruliðum málsins. Lesa meira