Snjórinn verður áberandi víða um land næstu daga með snjókomu og slyddu víða um land í dag og á nokkrum stöðum á morgun, einkum þá á Vestfjörðum og Norðurlandi. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru byrjaðir að kanna færð á vegum. Víða er hálka eða hálkublettir. Flughált er á Bröttubrekku og Eldborgarhrauni. Snjóþekja er víðast á Vestfjörðum og á Fróðárheiði og Holtavörðuheiði. Flughált er sums staðar á höfuðborgarsvæðinu.Norðan og norðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu og snjókoma eða slydda í dag, en hægari og stöku él sunnanlands. Gengur í norðan og norðvestan þrettán til tuttugu vestantil á morgun, annars hægari vindur. Snjókoma eða slydda, einkum á Vestfjörðum og Norðurlandi, en þurrt suðaustanlands.Hiti nálægt frostmarki að deginum.