Þegar hinn rómaði flatbökustaður La Colina í Borgarnesi hætti sáu vinkonurnar Rannveig Rögn Leifsdóttir og Agnes Hjaltalín Andradóttir sér leik á borði og hafa opnað veitingastaðinn Þúfuna í húsinu við Hrafnaklett. Undirtektirnar eru svo góðar að þangað streymir fólk þótt ekki hafi einu sinni gefist ráðrúm til að hengja upp skilti staðarins.