Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sex íranskar landsliðskonur fá hæli í Ástralíu

Sex íranskar landsliðskonur í fótbolta hafa fengið stöðu flóttamanns í Ástralíu. Konurnar voru í Ástralíu að keppa á Asíumótinu í fótbolta. Það vakti athygli þegar liðið söng ekki með íranska þjóðsöngnum í fyrsta leik sínum en nokkrar landsliðskonur voru útnefndar sem svikarar af íranska ríkisfjölmiðlinum eftir uppátækið.Liðið féll úr keppni á sunnudaginn eftir þrjá tapleiki. Skömmu fyrir heimför í gær voru fimm landsliðskonur búnar að sækja um hæli. Rétt fyrir brottför sótti önnur landsliðskona um stöðu flóttamanns og einnig ein starfskona landsliðsins sem var með hópnum.Yfirvöld í Ástralíu samþykktu umsóknir kvennanna og þær voru fluttar í öruggt húsnæði á vegum yfirvalda. Ein kvennanna dró svo umsókn sína til baka og sveik liðsfélaga sína og gaf upp heimilisfang þeirra í íranska sendirá
Sex íranskar landsliðskonur fá hæli í Ástralíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta