Búist er við að hundruð skjala tengdum skipun Peter Mandelsons sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum verði birt á miðvikudaginn. Meðal þeirra skjala sem talin eru að birt verði, er áreiðanleikaskýrsla forsætisráðuneytisins um Mandelson. Þetta kemur fram í frétt breska fjölmiðilsins The Guardian um birtingu skjalanna.Skýrslan er talin líkleg til að vekja upp enn fleiri spurningar um ákvörðun Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands, um að tilnefna Mandelson sem sendiherra þrátt fyrir vitneskju um tengsl Mandelsons við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Heimildir Guardian herma að skýrslan hafi varað Starmer við því að skipun Mandelsons gæti skaðað orðstír Starmers.Meðal skjalanna sem birt verða eru samskipti milli skrifstofa ríkisstjórnarinnar, forsætisráðuneytisins og utanríkisráðu