Ítalska ríkið hefur fest kaup á portrettmálverki eftir ítalska málarameistarann Caravaggio. Málverkið kostaði 30 milljónir evra sem samsvarar um 4,5 milljörðum íslenskra króna; upphæðin er ein sú hæsta sem nokkurn tímann hefur verið greidd fyrir málverk.Menningarmálaráðherra Ítalíu, Allessandro Giuli, segir kaupin vera lið í því að koma í veg fyrir að merkileg málverk verði keypt af einkasöfnurum. Málverk Caravaggio var áður í einkaeign í Flórens, það er nú til sýnis í Palazzo Barberini-safninu í Róm.Málverkið málaði Caravaggio af klerkinum Monsignor Maffeo Barberini. Barberini gegndi síðar embætti páfa og gekk hann þá undir nafninu Úrbanus páfi áttundi; embættinu gegndi hann frá 1623 til dauðadags 1644.Carvaggio, sem hét réttu nafni Michelangelo Merisi, var áhrifamikill ítalskur barokkmál