Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sex létust og fimm slösuðust í eldsvoða í rútu

Sex eru látnir og fimm eru slasaðir, þar af þrír alvarlega, eftir að eldur kom upp í rútu í Sviss í gærkvöld. Rútan var í smábænum Kerzers sem er staðsettur um 20 kílómetra vestur af höfuðborginni Bern.Fréttaveitan AFP hefur eftir Frederic Papaux, talsmanni lögreglu Fribourg-fylkis, að upptök eldsins séu ókunn en að lögregla telji hann vera af mannavöldum og að mögulega hafi verið um íkveikju að ræða.Ekki liggur fyrir hversu margir voru í rútunni þegar eldurinn kom upp en nokkrir farþegar náðu að koma sér úr rútunni af sjálfsdáðum áður en björgunarfólk kom á vettvang. Eldurinn breiddist hratt út í rútunni sem er gjöreyðilögð eftir brunann. Lögreglan rannsakar málið og hefur óskað eftir vitnum að eldsvoðanum.Rútan er svokölluð PostBus, almenningsrútur sem keyra milli dreifbýlis og þéttbýlis
Sex létust og fimm slösuðust í eldsvoða í rútu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta