Miðstjórn bandaríska hersins, CENTCOM, segir að Bandaríkjaher hafi grandað og gjöreyðilagt 16 skip sem útbúin voru til þess að koma fyrir tundurduflum á Hormússundi. Greint er frá þessu í færslu miðstjórnarinnar á samfélagsmiðlinum X. Forsetinn segir skipin ekki hafa verið í notkun þegar árásin átti sér stað.Í færslunni segir að herinn hafi gert 16 írönsk skip óvirk, þau hafi öll verið útbúin til þess að koma fyrir tundurduflum. TRUMP VARAÐI VIÐ Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í kvöld færslu á Truth Social þar sem hann varaði Írana við því að koma fyrir tundurduflum við Hormússund.Eins bætti hann við að yrði það gert muni Bandaríkjaher grípa til stórfelldra hernaðaraðgerða. Öll þau skip sem talin eru útbúin tundurduflum verði sprengd í loft upp - á sama máta og þau sem voru notuð í