Úkraínski herinn hefur náð til baka tæplega 400 ferkílómetra landsvæði af hernumdu svæði á undanförnum vikum, samkvæmt pólska fjölmiðlinum TVP World.Úkraínski herinn hefur ekki náð svo miklu landsvæði til baka af Rússum síðan sumarið 2023, að sögn undirhershöfðingjans Oleksandr Komarenko, yfirmanns aðalaðgerðardeildar úkraínska hersins.Landsvæðið sem um ræðir er nær allt Dnipropetrovsk-héraðið í suðurhluta Úkraínu en enn á eftir að ná til baka og tryggja fimm þorp í héraðinu til að endurheimta héraðið að fullu.Hægt hefur á sókn rússneskra hersveita á víglínunni að undanförnu. Komarenko segir að staðan á víglínunni sé flókin en hún sé undir stjórn. Aðstæður eru erfiðastar nærri Pokrovsk og Oleksandrivsk þar sem rússneskar hersveitir eru samansafnaðar.