Laufey heldur tónleika í Kórnum um helgina og að þeim loknum verður búðinni lokað.„Grunnskólar í Kópavogi voru víst í fríi, þannig að það var komin röð af krökkum hérna fyrir framan þegar við mættum í morgun,“ segir Skarphéðinn Finnbogason, verkefnastjóri hjá Senu Live.Hann segir alls kyns varning í boði, en það vinsælasta eru peysur og bolir. „Við erum með vínylinn hennar, við erum með geisladiskinn hennar, síðan erum við með lyklakippur og poka og fleira skemmtilegt,“ segir Skarphéðinn.En þetta er ekki bara verslun. „Nei. Við verðum meðal annars með tónleika hérna á fimmtudaginn og föstudaginn,“ segir Skarphéðinn.Í Laufeyjarlandi í Smáralind er hægt að kaupa ýmsan varning tengdan tónlistarkonunni Laufeyju. Biðröð myndaðist fyrir utan þegar búðin var opnuð í hádeginu og aðdáendur þustu in