Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Segir Bandaríkjaher hafa grandað tíu skipum

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkjaher hafi grandað og gjöreyðilagt tíu skip sem útbúin voru til þess að koma fyrir tundurduflum. Forsetinn segir skipin ekki hafa verið í notkun þegar árásin átti sér stað.Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Fyrr í kvöld birti Trump aðra færslu þar sem hann varaði Írana við því að koma fyrir tundurduflum við Hormússund.Eins bætti hann við að yrði það gert muni Bandaríkjaher grípa til stórfelldra hernaðaraðgerða. Öll þau skip sem talin eru útbúin tundurduflum verði sprengd í loft upp - á sama máta og þau sem voru notuð í meintu fíkniefnasmygli á Karíbahafi fyrir nokkru.Í fréttCNN sem birt var fyrr í kvöld er haft eftir heimildarmönnum að Íranar hafi þegar komið fyrir tundurduflum á sundinu, Trump
Segir Bandaríkjaher hafa grandað tíu skipum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta