Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni á fyrirkomulagi eftirlits Matvælastofnunar, MAST, með blóðmerahaldi án athugasemda. Vísað er til svara frá MAST. Umboðsmaður segist ekki hafa forsendur til að gera athugasemdir við starfshætti MAST og hvernig stofnunin framkvæmir sitt mat.