Lögreglan á Vesturlandi er að leita að Heklu Agnarsdóttir, 14 ára. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar. Síðast sást til Heklu á Akranesi í dag 10.03, klukkan 12:20. „Ef þú hefur upplýsingar um ferðir Heklu eftir þann tíma hafðu þá samband við lögregluna, 112,“ segir í tilkynningunni.