Það er brýnt að bæta aðstoð og upplýsingaflæði til erlendra lækna og heilbrigðisstarfsfólks, segir yfirlæknir sérnámsgrunnslækna á Landspítalanum. Hún segir skort á íslenskukunnáttu það helsta sem verði til þess að erlendir læknar fái ekki starf innan heilbrigðiskerfisins. VINNUR VIÐ ÞJÓNUSTUSTÖRF ÞRÁTT FYRIR AÐ VERA LÆKNIR Í sjónvarpsfréttum á dögunum var rætt við Dariu Peremot, úkraínskan háls-, nef- og eyrnalækni, sem segist ekki fá vinnu sem slíkur hér á landi þrátt fyrir að hafa tekið stöðupróf og fengið starfsleyfi sem læknir.Hún hefur verið á Íslandi í tæplega fjögur ár og vinnur við þjónustustörf. Hún segist gjarnan vilja nýta læknismenntun sína og hæfileika og gagnrýnir hversu flókið fyrirkomulagið er hér á landi. ÍSLENSKT HEILBRIGÐISKERFI OPIÐ FYRIR ÞVÍ AÐ FÁ ERLENT STARFSFÓ