Íslensk kona sem var rænd á Tenerife segist hafa óttast um líf sitt. Maður réðst á hana úti á götu og reif af henni hálsfesti. Hún ákvað að kæra málið ekki til lögreglu.Fréttastofa hefur fengið ábendingar um fleiri dæmi þar sem fólk lýsir því að hafa verið rænt með svipuðum hætti á Tenerife. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki fengið upplýsingar um slík atvik. REIF AF HENNI HÁLSMEN OG HLJÓP Í BURTU Brynja Baugsdóttir er á Los Cristianos á Tenerife í fríi með frænkum sínum. Hún deildi reynslu sinni á samfélagsmiðlinum TikTok.Brynja segir atvikið hafa átt sér stað um kvöldmatarleytið á sunnudag. Þá hafi enn verið bjart. Hún hafi verið að fara að hitta frænkur sínar þegar hún mætti tveimur mönnum á göngugötu. Þeir hafi gengið fram hjá en annar síðan heilsað henni.„Svo bara st