Umboðsmaður Alþingis telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við starfshætti MAST og fyrirkomulag eftirlits stofnunarinnar með blóðmerahaldi.Í bréfi umboðsmanns segir að embættið hafi tekið málið til athugunar að eigin frumkvæði eftir að fjallað var um meðferð á blóðmerum í fjölmiðlum. Til athugunar voru viðbrögð Matvælastofnunar við upplýsingum um slæma meðferð á blóðmerum.Í bréfi umboðsmanns segir að embættið hafi sent Matvælastofnun bréf 15. apríl og stofnunin var þar beðin að upplýsa um fyrirkomulag eftirlits með blóðmerahaldi, umfang þess og skipulag, samanborið við annað eftirlit stofnunarinnar.Umboðsmaður óskaði einnig eftir því að gerð yrði grein fyrir því mati sem fram færi þegar ákvörðun væri tekin um hvort beita ætti viðurlögum eða ekki. Að endingu var óskað skýringa og uppl