Evrópumálin eru komin kyrfilega á dagskrá eftir að ríkisstjórnin kynnti á föstudag þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Spurt verður: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Fyrri umræða stóð enn á Alþingi síðdegis á þriðjudegi og það eru ekki bara stjórnarandstæðingar á mælendaskrá heldur líka stjórnarliðar.. Eins búist var við hefur umræðan verið tilfinningaþrungin á köflum, jafnvel óvægin og þung orð hafa verið látin falla. UPPLIFÐU EINS OG NÚ VÆRI ANDRÝMI Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, bendir á að talað hafi verið um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu í stjórnarsáttmála og að farið yrði í hana fyrir árslok 2027. „Við vorum mjög ákveðnar að láta af þessu verða, það eru skiptar skoðanir innan flokka og milli flokka en allir sammála u