Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fullorðins-LEGO lætur fólki líða aftur eins og börnum

Danski leikfangarisinn LEGO skilaði methagnaði í fyrra og rekstur fyrirtækisins hefur sjaldan gengið eins vel. Ástæðan er kannski sú að fullorðnir kubba í meiri mæli en áður.Hagnaðurinn nam 325 milljörðum íslenskra króna. Það er meira en þrefaldur hagnaður stóru íslensku bankanna þriggja á síðasta ári samanlagt. Berglind Nína Antonsdóttir, starfsmaður í Kubbabúðinni í Smáralind, segir að fullorðnir séu æ oftar að versla fyrir sjálfa sig. Sérstök 18+ lína er vinsælust.En af hverju eru fullorðnir að leika sér, af því LEGO – þetta eru bara leikföng – af hverju er það gaman fyrir fullorðna líka?„Því að mig grunar að það sé að þá fáum við tilfinninguna eins og við séum börn aftur. Og þá fáum við að leika okkur,“ segir Berglind Nína.
Fullorðins-LEGO lætur fólki líða aftur eins og börnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta