Eftir fremur rólegar umræður framan af degi um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sló í brýnu milli Dags B. Eggertssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, svo um munaði, þegar sá fyrrnefndi skoraði á Miðflokkinn að gera grein fyrir tengslum flokksins við MAGA-hreyfinguna.Lætin hófust í andsvörum við ræðu Dags um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu. Sigmundur Davíð sakaði Dag um lygar í umræðunni og spurði hann hvenær hann ætlaði að koma sér inn í raunheima.Dagur svaraði spurningu Sigmundar Davíðs ekki beint en fór svo að tala um meint tengsl Miðflokksins við MAGA-hreyfinguna og sagði að flokkurinn þyrfti að gera hreint fyrir sínum dyrum í því máli. Heimildin hefur að undanförnu skrifað greinar um tengsl ákveðinna Miðflokksmanna við fólk tengt MAGA-hreyfingun