Um 60 manna kvikmyndateymi verður að störfum á Hólmavík næsta mánuðinn, að taka upp kvikmynd sem á að bera titilinn „Hólmavík“. Meðal leikara í myndinni verður fótboltakempan Eric Cantona. Kveikjan að sögunni eru tilmæli frá 16. öld um að Baskar væru réttdræpir á Vestfjörðum. BASKAR RÉTTDRÆPIR Á VESTFJÖRÐUM TIL 2015 „Það var löglegt að drepa Baska, fólk eins og mig. Ég las um þetta í fjölmiðlum fyrir nokkrum árum,“ segir leikstjórinn Mikel Aguirresarobe.Þetta voru reyndar ekki lög heldur tilskipun Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri á 16. öld, um að Baskar væru réttdræpir á Vestfjörðum. Jónas Guðmundsson, þáverandi sýslumaður á Vestfjörðum, afturkallaði tilskipunina 2015. ÞEKKT ANDLIT MEÐAL LEIKARA Aðalhlutverkið leikur Sergio Peris-Mencheta, sem leikið hefur í bandarískum hasarmyndum