Sjónvarpsþættirnir Love Story hafa notið mikilla vinsælda undanfarið og segja frá ástarsögu JFK Jr. og Carolyn Bessette Kennedy, sem voru gríðarlega ástfangin en féllu frá langt fyrir aldur fram. Tískuunnendur bíða margir spenntir eftir hverjum þætti en aðrir eru mjög ósáttir við seríuna. Má þar nefna að Darryl Hannah, fyrrverandi kærasta JFK Jr., er ekki par sátt við karakter sinn í seríunni.