Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um að móðirin í Edition-málinu svokallaða skuli sæta farbanni til 30. mars næstkomandi. Málið er enn ekki komið aftur á borð Héraðssaksóknara eftir að embættið sendi það aftur til lögreglur til frekari rannsóknar. Í úrskurði héraðsdóms eru skýrslutökur konunnar hjá lögreglu raktar en í þeim er meðal annars haft eftir konunni að dóttir hennar hefði viljað deyja með foreldrum sínum.