Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kona handtekin grunuð um að hafa reynt að drepa Rihönnu

Lögreglan í Los Angeles handtók 35 ára konu sem skaut tíu skotum úr hríðskotabyssu að heimili bandarísku tónlistar- og athafnakonunnar Rihönnu og fjölskyldu hennar.Rihanna var heima ásamt manni sínum, rapparanum A$AP Rocky og börnum þeirra þremur. Engan sakaði en ein byssukúla lenti á húsbíl í innkeyrslu þeirra, restin á vegg fyrir utan heimilið.Konan sem var handtekin er grunuð um tilraun til manndráps. Hún er í gæsluvarðhaldi og verður ekki látin laus nema gegn tryggingu upp á 10,2 milljónir bandaríkjadala. Þetta kemur fram í frétt Los Angeles Times.Lögreglan í Los Angeles fékk fyrst tilkynningu um skotárás í Beverly Hills-hverfinu rétt eftir hádegi á sunnudag.Kona var handtekin um hálftíma síðar í Sherman Oaks, næsta hverfi við Beverly Hills, þar sem margar bandarískar stjörnur búa.Lögr
Kona handtekin grunuð um að hafa reynt að drepa Rihönnu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta