Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur fundað með aðilum vinnumarkaðarins undanfarið og segir markmiðið að fara í samstilltar aðgerðir til að sporna við verðbólgu. Verkalýðsforystan hittir þrjá ráðherra ríkisstjórnarinnar á fundi á fimmtudaginn.Daði Már sagði eftir ríkisstjórnarfund fyrr í dag að samráð við aðila vinnumarkaðarins væri langt komið.„Þess er að vænta að niðurstaða úr því liggi fyrir fljótlega.“Markmiðið segir hann vera að fara í samstilltar aðgerðir, ekki sé tímabært að ræða hverjar þær verði en það verði tilkynnt um leið og það liggi fyrir.„Þetta er verkefni sem erfitt er að takast á við einhliða frá hendi ríkisins en með aðilum vinnumarkaðarins getum við náð árangri,“ segir Daði.„Við erum að horfa til þeirra hluta sem að geta sannarlega haft áhrif á ve